Úrskurðir kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa
Álit í máli 7/2005
Álit kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa
Mál 7/2005
I. Málsmeðferð kærunefndar.
Þann 13. september 2005 tók nefndin við álitsbeiðni X, hér eftir nefndur álitsbeiðandi, vegna ágreinings hans við Y ehf., hér eftir nefnt gagnaðili. Í kjölfarið sendi nefndin erindið til gagnaðila til umsagnar og barst svar frá honum þann 3. október 2005. Af hálfu nefndarinnar var ákveðið að óska eftir frekari skýringum frá álitsbeiðanda og var það gert með bréfi dagsettu 23. janúar 2006 og barst svar álitsbeiðanda við þeirri beiðni þann 16. febrúar 2006. Þann 7. mars 2006 sendi nefndin álitsbeiðanda á ný bréf með óskum um frekari skýringar en ekki barst svar við því bréfi.
II. Helstu málsatvik, ágreiningsefni og kröfur.
Í lok september 2004 keypti álitsbeiðandi af umboðsaðila gagnaðila á ........ bifreið af tegundinni Opel Astra-G-Caravan, árgerð 2000. Þegar kaupin fóru fram hafði bifreiðinni verið ekið 100.000 km. Á gamlárskvöld sama ár lagði álitsbeiðandi bifreiðinni og komst ekki að henni aftur fyrr en 4. janúar 2005 vegna ófærðar. Álitsbeiðandi reyndi þá að ræsa bifreiðina en án árangurs. Við svo búið segir álitsbeiðandi að bifreiðin hafi verið flutt til Vélsmiðjunnar .............. ehf., í ........., þar sem látið var þiðna af henni.
Í bréfi sem nefndinni barst frá álitsbeiðanda lýsir vélsmiðjan atvikum sem snúa að fyrirtækinu með þeim hætti að þann 10. janúar 2005 hafi verið komið með bifreiðina til viðgerðar. Biluninni hafi verið lýst þannig að bifreiðin færi með engu móti í gang. Eftir lauslega skoðun hafi verið haft samband við þjónustuaðila gagnaðila á ....... og rætt hvað gera skyldi. Af hálfu þjónustuaðilans hafi ekki verið talið nauðsynlegt að flytja bifreiðina til ......... heldur skyldi snúa vélinni á tímamark og taka síðan af stokklok (hedd) því líkur væru á að vélin hafi farið yfir á kveikitíma. Vélsmiðjan segist hafa framkvæmt þetta og þá hafi komið í ljós að undir lyftu voru stangir bognar og fleira. Ekki hafi verið aðhafst meira af þeirra hálfu.
Álitsbeiðandi segir sjálfur um framangreind atvik að hann hafi komið á verkstæðið daginn eftir að bílnum var komið þangað og þá verið tjáð að vélin hafi farið yfir á tíma vegna þess að snjóað hafi inn á tímareimina. Á þessum tíma hafði bifreiðinni verið ekið 107.000 km. Í framhaldinu segist álitsbeiðandi hafa haft samband við umboðsaðila gagnaðila á ..... og að svörin þaðan hafi verið að ,,þetta gerist bara”. Hafði álitsbeiðandi þá samband við þjónustufulltrúa gagnaðila í Reykjavík og fékk að sögn álitsbeiðanda sama svar, þ.e. ,,þetta gerist bara”. Við framangreind svör var álitsbeiðandi afar ósáttur enda fannst honum sem gagnaðili hefði vitað að þetta myndi gerast ef það snjóaði inn á vélina. Taldi hann af þeim sökum að bifreiðin hefði verið haldin galla sem seljandi hefði leynt sig. Álitsbeiðandi leitaði í framhaldinu til Neytendasamtakanna um aðstoð. Neytendasamtökin sendu gagnaðila bréf og í bréfi dagsettu 7. júlí 2005 voru svör gagnaðila á þá leið að ekki væri um galla að ræða. Snjóað hefði inn á tímareimina og við það hefði vél bílsins farið yfir á tíma með þeim afleiðingum að tjón hlaust af. Gagnaðili sagðist því í bréfinu ekki sjá sig knúinn til að aðhafast neitt í málinu. Nokkru síðar leitaði álitsbeiðandi með málið til kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa.
Fyrir nefndinni gerir álitsbeiðandi þær kröfur að gagnaðili annað hvort taki bílinn til baka og endurgreiði sér hann eða geri við hann sér að kostnaðarlausu.
Gagnaðili segir í bréfi sínu til nefndarinnar að samkvæmt frásögn álitsbeiðanda hafi vél bifreiðarinnar farið yfir á tíma vegna veðurfars dagana [31.][1] desember 2004 til 3. janúar 2005. Jafnframt segir gagnaðili að þar sem ekki sé um neinn galla að ræða muni hann ekki aðhafast frekar í málinu.
III. Forsendur.
Í máli því sem hér um ræðir heldur álitsbeiðandi því fram að bifreið sem hann keypti af gagnaðila hafi verið gölluð. Jafnframt heldur álitsbeiðandi því fram að gagnaðili hafi vitað um gallann en leynt sig honum. Bifreið álitsbeiðanda var fjögurra ára gömul þegar kaupin áttu sér stað og hafði verið ekið 100.000 km. Til að nefndin geti lagt mat á það hvort bilun í ökutækinu geti talist galli verður nefndin að hafa tiltekin gögn í höndunum.Af hálfu álitsbeiðanda hafa hins vegar ekki verið lögð fram nein gögn sem nefndin gæti notað til slíks mats. Engar upplýsingar liggja fyrir um ástand bifreiðarinnar við kaupin en hvorki kaupsamningur aðila né sölu- eða ástandsskoðun voru lögð fram. Ekki kemur heldur fram í gögnum málsins hvert ástand bifreiðarinnar var þegar bilunin átti sér stað, hvort skipt hafði verið um tímareim í bifreiðinni eða hvað handbók bifreiðarinnar mælir fyrir um varðandi slík skipti. Þau gögn sem álitsbeiðandi lagði fram voru afrit af skuldabréfi og greiðsluáætlun vegna bifreiðarkaupanna. Þótt skuldabréfið og greiðsluáætlunin staðreyni kaupin og að öllum líkindum kaupverð bifreiðarinnar koma afritin ekki í stað framangreindra gagna. Við meðferð málsins kallaði nefndin eftir umræddum gögnum en þau bárust ekki.
Með vísan til alls framanritaðs er það álit nefndarinnar að álitsbeiðandi hafi ekki lagt fram næg gögn til stuðnings kröfum sínum og því sé óhjákvæmilegt annað en að hafna kröfum hans.
IV. Niðurstaða.
Kröfum X, álitsbeiðanda, á hendur Y ehf., gagnaðila, er hafnað.
Reykjavík, 10. maí 2006
_____________________________
Ólöf Embla Einarsdóttir
_____________________________ _____________________________
Anna Guðrún Árnadóttir Íris Ösp Ingjaldsdóttir[1] Leiðrétting nefndar. Í bréfi gagnaðila stendur 12. desember 2004 en þar er greinilega um mistök að ræða.
