Vaxtarsamningur Norðurlands vestra
Norðurland vestra á sér mikla möguleika til vaxtar og þróunar og aukinnar samkeppnishæfni með þeim
aukna fjölbreytileika og bættum lífskjörum sem því fylgir. Þetta byggist á þeim styrkleikum og tækifærum
sem fyrir hendi eru á svæðinu, sem og þeim áherslum og tillögum sem hér eru kynntar. Það er jafnframt mat og
framtíðarsýn verkefnisstjórnar að fyrir árið 2020 verði íbúatala svæðisins um 9.300 í fjölskylduvænu samfélagi
sem verður eftirsótt vegna atvinnutækifæra, góðrar þjónustu, möguleika til menntunar og nýtingar frítíma, sem
byggist á fjölbreyttu, framþróuðu, sérhæfðu og samkeppnishæfu atvinnulífi. Í framreikningi Hagstofunnar er gert
ráð fyrir að fólki fækki á næstu árum en framtíðarsýn verkefnisstjórnar er að íbúum Norðurlands vestra í heild
fjölgi árlega að meðaltali um a.m.k. 0,3%.
Hér má nálgast skýrslu verkefnisstjórnar: Vaxtarsamningur Norðurlands vestra (PDF snið)

