Nefnd um aðgerðir gegn peningaþvætti
Nefnd um aðgerðir gegn peningaþvætti
Ráðgjafarnefnd um málefni tengd peningaþvætti.
Hlutverk nefndarinnar er að fylgjast með framkvæmd aðgerða gegn peningaþvætti, samræma verklagsreglur og vera stjórnvöldum til ráðuneytis um málefni tengd peningaþvætti. Ennfremur miðar starf nefndarinnar að því að undirbúa úttektir alþjóðlega framkvæmdahópsins FATF (Financial Action Task Force on Measures against Money Laundering) um stöðu aðgerða gegn peningaþvætti á Íslandi og vinna að endurskoðun laga og reglugerða á þessu sviði í samræmi við tilmæli sem FATF hefur gefið út o.fl. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar viðskipta- og dómsmálaráðuneyta, embættis ríkislögreglustjóra, Fjármálaeftirlits, Seðlabanka Íslands og Samtaka fjármálafyrirtækja.
Með lögum nr. 64/2004 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka fjölgaði tilkynningarskyldum aðilum frá því sem áður var og ákvæði laganna mæla nú fyrir um ríkari skyldur á herðar þeim en áður. Því er gert ráð fyrir að Félag fasteignasala, Félag löggiltra endurskoðenda, Lögmannafélag Íslands, fjármálaráðuneyti (vegna Fyrirtækjaskrár, toll- og skattyfirvalda) og utanríkisráðuneyti muni framvegis eiga fulltrúa í nefndinni, auk áðurgreindra aðila.
Í nefndinni eiga sæti:
Aðalmenn:
- Helga Óskarsdóttir, efnahags- og viðskiptaráðuneyti, formaður
- Anna Kristín Traustadóttir, Félagi löggiltra endurskoðenda
- Ása Ögmundsdóttir, fjármálaráðuneyti
- Helga Rut Eysteinsdóttir, Fjármálaeftirlitinu
- Hildur Georgsdóttir, embætti Ríkislögreglustjóra
- Inga Þórey Óskarsdóttir, innanríkisráðuneyti
- Jóna Björk Guðnadóttir, Samtökum fjármálafyrirtækja
- Pétur G. Thorsteinsson, utanríkisráðuneyti
- Ragnar H. Hall, Lögmannafélagi Íslands
- Sigfús Þórðarson, Seðlabanka Íslands
- Sverrir Kristinsson, Félagi fasteignasala
Varamaður:
- Ögmundur H. Magnússon, fjármálaráðuneyti
