Prófnefnd fasteigna-, fyrirtækja og skipasala 2009-2013
Prófnefnd fasteigna-, fyrirtækja og skipasala
Prófnefnd fasteignasala starfar samkvæmt 3. gr. laga um sölu fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu, nr. 99/2004. Prófnefndin skal hafa á hendi forstöðu námskeiðs til réttindanáms fyrir þá sem vilja öðlast löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasalar samkvæmt lögum 99/2004 og reglugerð 837/2004 um námskeið og prófraun til að öðlast löggildingu.
Efnahags- og viðskiptaráðherra skipar prófnefnd fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala til fjögurra ára í senn. Formaður nefndarinnar er skipaður án tilnefningar en Félag fasteignasala tilnefnir einn nefndarmann og Hæstiréttur Íslands tilnefnir einn nefndarmann. Varamenn eru tilnefndir og skipaðir á sama hátt.
Prófnefnd fyrir tímabilið 2009-2013 skipa eftirtaldir:
- Friðjón Örn Friðjónsson, hæstaréttarlögmaður, formaður,
- Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali,
- Símon Sigvaldason, héraðsdómari.
Varamenn eru:
- Helga Óskarsdóttir , rekstarstjóri efnahags- og viðskiptaráðuneytis,
- Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali,
- Eyvindur G. Gunnarsson, lektor við Lagadeild Háskóla Íslands.
