Allar nefndir
Prófnefnd bifreiðasala 2009-2011
Efnahags- og viðskiptaráðherra skipar prófnefnd bifreiðasala til tveggja ára í senn samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 45/2003 um námskeið og próf til að öðlast leyfi til sölu notaðra ökutækja, sbr. lög nr. 28/1998 um verslunaratvinnu. Í nefndinni eiga sæti þrír menn og skal einn þeirra vera fulltrúi bifreiðaeigenda og annar fulltrúi bifreiðasala. Þrír varamenn skulu valdir með sama hætti.
Prófnefnd bifreiðasala 2009-2011 er svo skipuð:
- Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur, formaður,
- Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri (fulltrúi bifreiðaeigenda)
- Dagur Jónasson, sölustjóri (fulltrúi bifreiðasala)
Varamenn eru:
- Ástríður Jóhannesdóttir, lögfræðingur, Efnahags- og viðskiptaráðuneyti
- Arnaldur Hjartarson, hdl.
- Þórður Jónsson, framkvæmdastjóri.
