Allar nefndir
Nefnd til að endurskoða lög nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði með það að markmiði að innleiða efni tilskipunar 2009/65/EB um sameiginlega fjárfestingu í framseljanlegum verðbréfum
Efnahags- og viðskiptaráðherra skipar nefnd til að endurskoða lög nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði með það að markmiði að innleiða efni tilskipunar 2009/65/EB um sameiginlega fjárfestingu í framseljanlegum verðbréfum. Hlutverk nefndarinnar er að skila til ráðherra formlegum tillögum að breytingum á lögum nr. 128/2011.
Nefndin er skipuð af:
- Sigríður Marta Harðardóttir, tilnefnd af Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu (formaður)
- Haraldur Örn Ólafsson, tilnefndur af Samtökum fjármálafyrirtækja
- Berglind Helga Jónsdóttir, tilnefnd af Fjármálaeftirlitinu
- Helga Rún Helgadóttir, tilnefnd af Seðlabanka Íslands
- Vilhjálmur Bjarnason, tilnefndur af Samtökum fjárfesta
- Erna Jónsdóttir, lögfræðingur hjá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu mun einnig vera starfsmaður í nefndinni.
