Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
Endurkröfunefnd skv. 96. gr. umferðalaga nr. 50/1987 - 2009-2012
Samkvæmt 96. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 skipar ráðherra þriggja manna nefnd til að kveða á um hvort beita skuli endurkröfurétti vegna gáleysis eða ásetnings þess sem ábyrgð ber á tjóni sem vátryggingafélag hefur bætt samkvæmt umferðalögum. Skipunartími nefndarinnar er þrjú ár.
Eftirtaldir eru skipaðir í nefndina til 27. ágúst 2012:
Aðalmenn
- Helgi Jóhannesson, hrl., formaður
- Sigmar Ármannsson, lögfræðingur
- Andri Árnason, hrl.
Varamenn
- Indriði Þorkelsson, hdl.
- Helga Jónsdóttir
- Arnaldur Hjartarson, hdl.
