Lögbundnar nefndir, stjórnir og ráð
Samráðsnefnd verðbréfamiðstöðva, kauphalla og Seðlabanka.
Samkvæmt 15. gr. laga nr. 131/1997 um rafræna eignarskráningu verðbréfa skal skipa samráðsnefnd verðbréfamiðstöðva, kauphalla og Seðlabanka Íslands sem ætlað er að fjalla um samskipti áðurnefndra stofnana í tengslum við frágang viðskipta.
Viðskiptaráðherra skipaði nefndina 28. september 2003. (Áður skipuð nefnd verðbréfamiðstöðva, Verðbréfaþings Íslands og Seðlabanka Íslands hefur lokið störfum.)
Viðskiptaráðherra skipaði nefndina 28. september 2003. (Áður skipuð nefnd verðbréfamiðstöðva, Verðbréfaþings Íslands og Seðlabanka Íslands hefur lokið störfum.)
Í nefndinni eru:
- Guðmundur Kr. Tómasson, Seðlabanka Íslands, formaður,
- Einar S. Sigurjónsson, Verðbréfaskráningu Íslands hf., og
- Þórður Friðjónsson, Kauphöll Íslands hf.
