Tímabundin verkefni
Endurkröfunefnd skv. 96. gr. umferðalaga nr. 50/1987
Samkvæmt 96. gr. umferðalaga nr. 50/1987 skipar ráðherra þriggja manna nefnd til að kveða á um hvort beita skuli endurkröfurétti vegna gáleysis eða ásetnings þess sem ábyrgð ber á tjóni sem vátryggingafélag hefur bætt samkvæmt umferðalögum. Skipunartími nefndarinnar er þrjú ár. Þér eruð hér með skipaðir í nefndina.
Í nefndinni eiga sæti:
Aðalmenn:
Helgi Jóhannesson, hrl., formaður, til heimilis að Hörgshlíð 28.
Sigmar Ármannsson, lögfræðingur, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra tryggingafélaga, til heimilis að Miðleiti 12.
Andri Árnason, hrl., til heimilis að Eyktarási 7.
Varamenn:
Indriði Þorkelsson, hdl., til heimilis að Álfkonuhvarfi 23.
Þóra Hallgrímsdóttir, lögfræðingur, framkvæmdastjóri hjá Sjóvá-Almennum tryggingum hf., til heimilis að Keilugranda 4.
Knútur Halldórsson, framkvæmdastjóri, til heimilis að Dverghömrum 6.
