Tímabundin verkefni
Nefnd til að semja frumvarp um náttúruhamfaratryggingar
Viðskiptaráðherra hefur skipað í nefnd sem hefur það verkefni að semja frumvarp til laga um náttúruhamfaratryggingar sem leysi af hólmi lög um Viðlagatryggingu Íslands.
Í nefndinni sitja eftirtaldir:
Kjartan Gunnarsson, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu, formaður,
Helga Jónsdóttir, lögfræðingur, samkvæmt tilnefningu SFF,
Guðrún Á. Jósepsdóttir, lögfræðingur, samkvæmt tilnefningu Fjármálaeftirlitsins,
Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri, samkvæmt tilnefningu sambands íslenskra sveitarfélaga.
