Eftirlitsnefnd með framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar
Alþingi samþykkti í október 2009 lög um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins, nr. 107/2009. Í kjölfarið skipaði efnahags- og viðskiptaráðherra eftirlitsnefnd um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar, sbr. 4. gr. laganna.
Í nefndinni eiga sæti
María Thjell forstöðumaður lagastofnunar Háskóla Íslands (formaður), og
Þórólfur Matthíasson prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
Eftirlitsnefndin skal fylgjast með og kanna að eigin frumkvæði hvort eftirlitsskyldir aðilar á fjármálamarkaði framfylgja samræmdum reglum sem settar hafa verið á grundvelli laganna. Nefndin skilaði áfangaskýrslu um störf sín til ráðherra í mars og hefur hún verið lögð fram á Alþingi. Önnur áfangaskýrsla nefndarinnar er væntanleg í byrjun júlí 2010.
Samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Samkomulag um verklagsreglur um sértæka skuldaaðlögun einstaklinga.
- Skýrsla eftirlitsnefndar til efnahags- og viðskiptaráðherra, samkvæmt lögum nr. 107/2009 um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins - September 2011.
- Skýrslu nefndarinnar má nálgast á heimasíðu Alþingis.
- Skýrsla eftirlitsnefndar um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.
- Frétt frá 5. október 2010: Eftirlitsnefnd um sértæka skuldaaðlögun skilar skýrslu
- Frétt frá 22. september 2011: Eftirlitsnefnd um sértæka skuldaaðlögun skilar þriðju skýrslu
- Frétt frá 17. janúar 2012: Eftirgjöf skulda yfir einum milljarði króna
Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi til nefndarinnar á netfangið: skuldaadlogun@evr.is
