Stofnanir

Árangursstjórnunarsamningur milli viðskiptaráðuneytisins og Einkaleyfastofunnar


Árangursstjórnunarsamningur milli viðskiptaráðuneytisins og Einkaleyfastofunnar

Viðskiptaráðuneytið og Einkaleyfastofan gera með sér svohljóðandi samning:
 

I.          Tilgangur

Í samningi þessum er kveðið á um hlutverk Einkaleyfastofunnar og samskipti milli stofnunarinnar og viðskiptaráðuneytisins fest í sessi.

Jafnframt er kveðið á um gagnkvæmar skyldur Einkaleyfastofunnar og viðskiptaráðuneytisins við útfærslu á lögbundnu hlutverki og verkefnum stofnunarinnar ásamt því að leggja grunn að áætlanagerð og mati á árangri af starfsemi hennar.
 
Samningur þessi breytir í engu ábyrgð ráðherra gagnvart Alþingi á starfsemi stofnunarinnar né þeim stjórnsýsluskyldum sem ráðherra og stofnunin hafa lögum samkvæmt.
 

II.        Hlutverk

Hlutverk Einkaleyfastofunnar er að fara með málefni sem varða skráningu hugverkaréttinda í iðnaði hérlendis sem erlendis, svo og málefni faggildingar.
 

III.       Verkefni

Helstu verkefni Einkaleyfastofunnar eru:

  • að skrá einkaleyfi, vörumerki, hönnun, byggðarmerki og önnur hliðstæð hugverkaréttindi í iðnaði hér á landi;
  • að veita aðilum ráðgjöf og upplýsingar um hugverkaréttindi í iðnaði;
  • að auka almennan skilning á gildi hugverkaréttinda í iðnaði til hagsbóta atvinnulífi og almenningi;
  • að hafa samstarf við Evrópsku einkaleyfastofnunina (EPO) og taka þátt í stjórnun hennar, m.a. með setu í framkvæmdaráði og eftir atvikum fastanefndum,  svo og samstarf við ESB, EFTA, Alþjóðahugverkastofnunina (WIPO), Alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO) og Norrænu einkaleyfastofnunina (NPI) auk systurstofnana á Norðurlöndum;
  • að sjá erlendum gagnabönkum fyrir gögnum og upplýsingum um skráð réttindi hér og
  • að hafa yfirumsjón með faggildingarmálum.

 

IV.       Markmið og áherslur

Einkaleyfastofan skal í áætlunum sínum setja fram skýr markmið og leiðir að þeim ásamt því hvernig staðið skuli að mati á árangri eftir því sem unnt er.
 

Almenn markmið.

Einkaleyfastofan mun leggja áherslu á:

  • að vera framúrskarandi þjónustustofnun á sviði hugverkaréttinda í iðnaði;
  • að hvetja einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir til að hagnýta sér þjónustu Einkaleyfastofunnar;
  • að miðla upplýsingum til fyrirtækja og almennings, m.a. með rafrænum hætti og um aðgengi að alþjóðlegum gagnabönkum;
  • að leitast við að auka skilning á hugverkavernd hér á landi;
  • að stofnunin verði rekin á sem hagkvæmastan hátt og innan þeirra fjárheimilda sem ákveðnar eru hverju sinni;
  • að nýta upplýsingatækni, í samræmi við stefnu viðskiptaráðuneytisins, með það í huga að greiða fyrir aðgangi borgaranna í samskiptum við stofnunina og
  • að fylgjast með þróun mála á þessu sviði erlendis sem hérlendis, með tilliti til þarfa íslensks atvinnulífs, og gera tillögur um nauðsynlegar breytingar á lögum og reglum og aðild að alþjóðasamningum.

 

Sérstök markmið 2007-2009.

Einkaleyfastofan mun huga sérstaklega að eftirfarandi:

  • að verkferlar og þjónusta verði samræmd viðurkenndum gæðastöðlum og
  • að færa skjöl og pappír á rafrænt form.

 

V.        Skyldur og ábyrgð samningsaðila

Á samningstímanum munu Einkaleyfastofan og viðskiptaráðuneytið standa að verkefnum sem hér segir:
 

Einkaleyfastofan mun:

  • fyrir 1. júní 2009 leggja fram langtímaáætlun til næstu þriggja ára um helstu áherslusvið og forgangsröðun; áætlunin skal höfð að leiðarljósi við gerð ársáætlunar;
  • fyrir 31. maí 2009 endurskoða starfsmannastefnu og jafnréttisáætlun og senda ráðuneytinu eintak þeirra; stefnumiðin skulu jafnframt birt á heimasíðu stofnunarinnar;
  • í febrúarmánuði ár hvert leggja mat sitt á lagabreytingar, stjórnvaldsfyrirmæli og önnur atriði, sem haft geta áhrif á útgjaldaliði, og gera ráðuneytinu skil á fjárlagatillögum sem taka mið af þeim breytingum;
  • fyrir lok júlí ár hvert skila ráðuneytinu ársskýrslu vegna starfseminnar á liðnu ári þar sem gerður er samanburður á árangri og markmiðum, og
  • fyrir lok nóvember ár hvert skila ráðuneytinu drögum að ársáætlun fyrir næsta ár sem geymi tiltekin mælanleg markmið innan ársins á grundvelli langtímaáætlunar, svo og drögum að rekstraráætlun; lokið skal við áætlanagerð eigi síðar en 1. febrúar ár hvert.

 

Viðskiptaráðuneytið mun:

  • leiðbeina stofnuninni um forsendur vegna stefnumörkunar og vekja athygli á laga- og reglugerðarbreytingum er varða rekstur hennar;
  • taka innan þrjátíu daga afstöðu til markmiðssetningar, forgangsröðunar og mælikvarða sem koma fram í langtímaáætlun og ársáætlunum og koma sjónarmiðum ráðuneytisins á framfæri vegna þess;
  • beita sér fyrir því að fjárhagsgrundvöllur stofnunarinnar sé sem traustastur, m.a. í tengslum við breytingar á gjaldskrá, og
  • halda fund með forstöðumanni ár hvert þar sem farið er yfir þróun á starfssviði stofnunarinnar og stöðu hennar þar sem árangur og áætlanir eru ræddar; skal miðað við að slíkur fundur sé haldinn í tengslum við skil á ársskýrslu stofnunarinnar.

 

VI.       Gildistími og endurskoðun

Samningur þessi öðlast gildi við undirritun og gildir í þrjú ár. Hvor aðili um sig getur óskað eftir endurskoðun á samningstímanum. Stefnt skal að því að vinna við endurnýjun samningsins hefjist þremur mánuðum fyrir lok samningstímans. Sé nýr samningur ekki gerður fyrir lok samningstímans framlengist gildistíminn þar til nýr samningur öðlast gildi.
 

Reykjavík, 30. júní 2008.

 

Björgvin G. Sigurðsson                                                                                                                                      Ásta Valdimarsdóttir
viðskiptaráðherra                                                                                                                                  forstjóri Einkaleyfastofunnar

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica