Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið hafa sent frá sér tilmæli til fjármálafyrirtækja um hvernig þeim beri að fara með gengisbundin lán.

Þótt tímabundin óvissa ríki um endanlega niðurstöðu dómstóla er mikilvægt að stöðuleiki á fjármálamarkaði verði áfram tryggður. Ríkisstjórnin virðir sjálfstæði Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og ber fullt traust til þessara stofnana við að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Dómstólar eiga að sjálfsögðu síðasta orðið varðandi réttarágreining sem enn er uppi vegna gengisbundinna lána og verður réttur aðila til að bera mál undir dómstóla auðvitað ekki frá þeim tekinn og er mikilvægt að niðurstaða fáist sem fyrst.

Tilmæli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands má lesa á heimasíðum þeirra.

Hér má lesa inngangsorð Arnórs Sighvatssonar, aðstoðarseðlabankastjóra og Gunnars Þ. Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins á blaða- og fréttamannafundi Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands í morgun.