Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur skipað nefnd sem mun kanna forsendur verðtryggingar á Íslandi. Nefndin er skipuð í kjölfar þingsályktunar frá 16. júní sl. og mun meðal annars meta kosti og galla þess að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku fjármálakerfi, án þess að fjármálastöðugleika sé ógnað.
Nefndin mun skoða á heildstæðan hátt áhrif verðtryggingar á lántaka og lánveitendur sem og áhrif hennar á virkni hagstjórnar og efnahagslegan stöðugleika almennt.
Nefndin er skipuð af:- Eygló Harðardóttir, alþingismaður, formaður nefndar, skipuð af ráðherra
- Arinbjörn Sigurgeirsson, tilnefndur af þingflokki Hreyfingarinnar
- Björn Rúnar Guðmundsson, tilnefndur af efnahags- og viðskiptaráðuneyti
- Hrólfur Ölvisson, tilnefndur af þingflokki Framsóknarflokksins
- Ingvar H. Ragnarsson, tilnefndur af fjármálaráðuneyti
- Lilja Mósesdóttir, tilnefnd af þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs
- Pétur H. Blöndal, tilnefndur af þingflokki Sjálfstæðisflokksins
- Vilhjálmur Þorsteinsson, tilnefndur af þingflokki Samfylkingarinnar
Áheyrnarfulltrúi frá Seðlabanka Íslands er Ásgeir Daníelsson
Starfsmaður nefndarinnar er Steindór Grétar Jónsson, sérfræðingur hjá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.
Nefndinni er ætlað að skila ráðherra áliti sínu og tillögum í lok árs.